- Uppröðun og framsetning efnis er þýðingarmikil á síðunni þinni. Útlitshönnun uppá 10 gagnast engum ef notandinn finnur ekki samstundis það sem leitað er að. Þannig er best að láta arkitektúr innihalds síðunnar og útlitshönnunina vinna saman að því að gera efni síðunnar sem aðgengilegast og síðuna notendavæna.
- Ég sérhanna allar vefsíður og vinn ekki með stöðluð útlit. Útlit vefsíðunnar þinnar skiptir mjög miklu máli. Sjónrænt auðkenni (visual identity) þitt er það sem færir þér sérstöðu á veraldarvefnum.
- Ég vinn samkvæmt nýjustu reglum um leitarvélabestun hverju sinni. Ég býð líka uppá sérstaka orðgreiningu.
- Vefsíður sem ég hanna eru mjög sveigjanlegar í uppsetningu þannig að þær sjást vel í öllum vöfrum, öllum stærðum tölvuskjáa og líka í snjallsímum og spjaldtölvum.
- Það skiptir líka máli að vefumsjónarkerfið sem þú notar sé þægilegt og ódýrt. Ég nota svokallað “Open Source” kerfi sem heitir WordPress en það er notað af þúsundum um allan heim og er frítt. Það er líka mjög vinsælt á Íslandi.
- Þú þarft lén og hýsingu fyrir vefsíðuna þína, ég hýsi minni síður og aðstoða með kaup á léni og get bent á góða hýsingarmöguleika.
- Tölvupóstur. Það fer eftir því hvar þú hýsir síðuna þína hvernig tölvupóstmöguleika þú hefur. Ef þú kýst að hýsa hjá mér, getur þú fengið eins mörg tölvupóstföng og þú þarft.
- Vefhönnun
- Grafísk hönnun
- SEO
- Vefumsjónarkerfi
- Fréttabréf
- Myndagallerý
- Lógó
- Auglýsingaefni
- Teljari
- Blogg/fréttakerfi
- Hýsing
- Notenda handbók
- Samfélagsmiðlar
- Lén