UM MIG
Ég er Kristín Guðmundsdóttir, vefhönnuður. Ég er margmiðlunarhönnuður að mennt en ég útskrifaðist úr Københavns Erhvervsakademi árið 2010. Þú gætir verið að velta fyrir þér hvað margmiðlunarhönnuður eiginlega er. Hér kemur smá skýring:
“Margmiðlunarhönnuðir eru hvorki grafískir hönnuðir né forritarar en geta samt bæði. Margmiðlunarhönnuði er að finna sem sjálfstæða atvinnurekendur (freelancers), á auglýsingastofum, hjá tölvuleikjaframleiðendum, sem umsjónarmenn vefsíðna smærri og stærri fyrirtækja og sem þúsundþjalasmiði í fyrirtækjum sem framleiða vefsíður eða starfa í stafrænni markaðssetningu.”
Ég hef starfað við umsjón vefsíðna síðan 2003 og sem vefhönnuður síðan 2008.
Fyrir utan að vera mjög áhugasöm um allt sem tengist alnetinu er ég móðir, eiginkona, flautuleikari, prjónari, lífskúnstner, yogini og yogakennari.
Kristín Guðmunds
kristin@kristingudmunds.is
S: 571 8400

