SAMFÉLAGSMIÐLAR
Samfélagsmiðlar hafa sannarlega rutt sér til rúms sem markaðstæki og samskiptatól.
Facebook er það sem er algengast í þessum efnum hér á Íslandi, þó að Twitter sé að koma sterkur inn um þessar mundir líka.
Það getur verið góð hugmynd að tvinna Facebook, sem samfélagsmiðil, við vefsíðu þína, með t.d athugasemdakerfi, “like-hnappi” og allskyns tólum og tækjum sem Facebook gefur út, í sumum tilfellum er það hinsvegar ekki nauðsynlegt og ekki af hinu góða. Ég veiti viðskiptavinum mínum faglega ráðgjöf í þessum málum.

