Lógó í vinnslu
Margt í vinnslu þessa dagana. T.d er hér lógó fyrir barnafataverslun í fæðingu. Byrja á skissuvinnu og hlakka til að sjá loka útgáfuna. Í meira lagi spennandi verkefni.
Margt í vinnslu þessa dagana. T.d er hér lógó fyrir barnafataverslun í fæðingu. Byrja á skissuvinnu og hlakka til að sjá loka útgáfuna. Í meira lagi spennandi verkefni.
Þá er nýja nafnspjaldið mitt farið í prentun. Ég ákvað að nota ákveðin atriði sem ég nota líka á þessari vefsíðu á nafnspjaldinu, trébakgrunninn og ljósa flötinn fyrir texta og að sjálfsögðu lógóið mitt. Ég nota þessi atriði af vefsíðunni á nafnspjaldinu líka vegna þess að ég vil að fólk sem fær nafnspjaldið í hendur viti að það er á réttum stað þegar það kemur inná vefsíðuna.
Það er mikilvægt að tengja allt sem við sendum frá okkur saman þ.e vefsíðu, nafnspjöld, reikninga, umslög, tölvupóst, útlit á fésbókinni og hvað eina sem viðskiptavinur og væntanlegir viðskiptavinir munu koma auga á. Það styrkir strax tengslin við notandann og skapar traust að hafa allt í sama útliti. Að skapa traust milli þín og viðskiptavinarins er eitt af grundvallar atriðunum í öllum rekstri og starfssemi.
Ég hlakka auðvitað til að fá nafnspjöldin mín í hendur.
Skóstofa Danna fékk lógó hjá mér í dag. Mér finnst það hæfa skóstofu mjög vel. Ég veit að það á að nota það á skilti og fleira, ég hlakka til að gera mér ferð uppá Akranes og kíkja á það.
Ungur maður í markaðsfræðinámi í Kaupmannahöfn vildi stofna fyrirtæki í kringum markaðssetningu með nafninu Social Metropolis. Ég hannaði þetta lógó fyrir hann.
Lógó fyrir Kjöthornið á Hvammstanga sem fæst við kjötvinnslu. Gefur auga leið að rauður var valinn fyrir þetta.
Bessastaðir eru hrossaræktarbú í Húnaþingi vestra. Ég fékk teikningu í hendur og vann út frá henni þetta lógó.
Lógó sem ég hannaði fyrir snyrtistofu í Kaupmannahöfn. Þegar ég fékk verkefnið í hendur var eigandi snyrtistofunnar þegar með lógó sem hún vildi nota.
Ég hannaði engu að síður þetta lógó og sýndi henni, en hún vildi frekar nota lógóið sem hún var með. Svona fer það stundum og ég flokkaði þetta lógó undir “killed darlings”.
Adeez er kvikmyndagerðar kona hér á Íslandi sem ég hannaði þetta lógó fyrir. Það er að mestu unnið í Illustrator.