HVERNIG VINN ÉG

“Ég vinn skipulega og örugglega en með sköpunargleðina að leiðarljósi. Ég hef tamið mér að virða tímamörk sem sett hafa verið sem og að gefa viðeigandi faglega ráðgjöf.”

Algengast er að ég vinni í þessari röð:

  • Við fundum saman á einhvern máta og finnum útúr því hvað er best að gera.
  • Ég geri tímaáætlun og verksamning sem þú þarft að staðfesta. Hér myndum við athuga með lénið.
  • Ég geri skissur að uppröðun efnis, lógói (ef þarf) og grafík fyrir vefinn og sendi þér til yfirferðar.
  • Þegar þú hefur samþykkt útlitið hefst ég handa við að setja upp vefinn. Á þessu stigi getur þú fengið aðgang að kerfinu og byrjað að æfa þig í að nota það. Hér myndirðu fá leiðbeiningar sendar.
  • Ef þú ætlar ekki að sjá um innsetningu efnis, þá færðu þér bara te og nýtur dagsins.
  • Ég geri próf á síðunni í hinum ýmsu vöfrum og athuga hvort öll kerfi sem við ákváðum að ættu að vera, virki.
  • Eftir prófanir er síðan tilbúin til flutnings yfir á lénið. Rétt áður en ég færi síðuna set ég upp allan tölvupóst og þessháttar sem þú þarft.
  • Þú velur hvort þú tekur síðan við stjórninni eða færð mig til að sjá um síðuna.

Þetta er svona gróf mynd af því sem gerist.

 

 

 

 

 

  • Vefhönnun
  • Grafísk hönnun
  • SEO
  • Vefumsjónarkerfi
  • Fréttabréf
  • Myndagallerý
  • Lógó
  • Auglýsingaefni
  • Teljari
  • Blogg/fréttakerfi
  • Hýsing
  • Notenda handbók
  • Samfélagsmiðlar
  • Lén