Lógó í vinnslu

\\gg 300x225 Lógó í vinnsluMargt í vinnslu þessa dagana. T.d er hér lógó fyrir barnafataverslun í fæðingu. Byrja á skissuvinnu og hlakka til að sjá loka útgáfuna. Í meira lagi spennandi verkefni.

Vefsíðuskissa

\\hittMatargatidSkissa21 594x1024 VefsíðuskissaEr að vinna í uppskriftavef. Hér er skissa af forsíðu hans, bara svona til gamans :) Ég er ekki alveg búin að fullkomna verkið en þetta er áttin sem ég er að fara í. Ferskt.

Anton og Bergur

\\antonogbergur 282x300 Anton og BergurVefsíða Antons og Bergs. Þeir vinirnir eru grafískt þenkjandi og útlitið kom úr þeirra smiðju, þannig að mitt verkefni var að koma síðunni fyrir þínar sjónir í vafranum þínum, iPadnum þínum, símanum þínum..

 

Fermingartíminn

\\tomasFerming120312 300x141 FermingartíminnEkki bara varð ég vitni af því að það eru tré hér í Reykjavík að rembast við að breiða úr laufblöðum (vil meina að vorið sé á næsta leiti), heldur er líka tími ferminga.

Fermingarboðskort, flottur strákur.

YOGA SHALA

\\forsida 300x286 YOGA SHALANý vefsíða Yoga Shala fór í loftið fyrir skemmstu. Ég færði síðuna yfir í vefumsjónarkerfi sem heitir WordPress og gaf útlitinu andlitslyftingu þó svo að hönnunin hafi haldið sér í stórum dráttum.

Ég nota yfirleitt WordPress vefumsjónarkerfið fyrir síður sem ég set upp, einfaldlega vegna þess að það er jafn auðvelt að uppfæra efni í kerfinu eins og að senda tölvupóst. Allir geta notað það.

Þetta þarf ekki að vera flókið!

Kíktu á síðu Yoga Shala.

 

NAFNSPJALDIÐ FARIÐ Í PRENTUN

\\nafnspjald NAFNSPJALDIÐ FARIÐ Í PRENTUNÞá er nýja nafnspjaldið mitt farið í prentun.  Ég ákvað að nota ákveðin atriði sem ég nota líka á þessari vefsíðu á nafnspjaldinu, trébakgrunninn og ljósa flötinn fyrir texta og að sjálfsögðu lógóið mitt. Ég nota þessi atriði af vefsíðunni á nafnspjaldinu líka vegna þess að ég vil að fólk sem fær nafnspjaldið í hendur viti að  það er á réttum stað þegar það kemur inná vefsíðuna.

Það er mikilvægt að tengja allt sem við sendum frá okkur saman þ.e vefsíðu, nafnspjöld, reikninga, umslög, tölvupóst, útlit á fésbókinni og hvað eina sem viðskiptavinur og væntanlegir viðskiptavinir munu koma auga á. Það styrkir strax tengslin við notandann og skapar traust að hafa allt í sama útliti. Að skapa traust milli þín og viðskiptavinarins er eitt af grundvallar atriðunum í öllum rekstri og starfssemi.

Ég hlakka auðvitað til að fá nafnspjöldin mín í hendur.

SKÓSTOFA DANNA- nýtt lógó

\\skoStofaDanna SKÓSTOFA DANNA  nýtt lógóSkóstofa Danna fékk lógó hjá mér í dag. Mér finnst það hæfa skóstofu mjög vel. Ég veit að það á að nota það á skilti og fleira, ég hlakka til að gera mér ferð uppá Akranes og kíkja á það.

SNJALLSÍMAR Á FERÐALAGI

\\snjallsimi a ferdalagi SNJALLSÍMAR Á FERÐALAGIÍ dag eru vefhönnuðir ekki einungis að vefa fyrir staðlaða skjástærð skjás fyrir borðtölvu, heldur er hinn almenni notandi með fartölvu með bæði litlum og stórum skjá, borðtölvu með skjá af öllum stærðum og síðast en ekki síst er að nefna snjallsíma og spjaldtölvur.

Útaf því hve breitt úrval tækja sem geta tengst internetinu eru nú í boði fyrir hinn almenna notanda má segja að vefhönnuðir þurfi að hugsa hlutina í víðara samhengi. Gera þarf ráð fyrir hvernig notandi með snjallsíma eða spjaldtölvu muni upplifa vefsíður sem líka eru í fullri stærð. Í dag er hægt að hanna og kóða síður, á auðveldari hátt en áður,  sem virka vel fyrir allar skjástærðir, vefsíðurnar verða teygjanlegar má segja, án þess þó að þær séu teygðar. Allir sem eru á byrjunarreit eða íhuga endurhönnun á núverandi vefsíðu ættu að stíga inní nútímann og biðja sinn hönnuð og/eða kóðara að búa þannig um hnútana að nýi vefurinn sé teygjanlegur og auðlesinn í öllum skjám.

“Hversvegna einusinni að spá í því hvernig skjá notendur eru með?.. ég sé vefinn fínt í minni tölvu.” 

Þú gætir verið að velta þessu fyrir þér. Ástæðan er sú að notkun snjallsíma, spjaldtölva og fartölva með lítinn skjá fer ört vaxandi. Fólk  sem notar tölvu ekki í mikið meira en að skoða internetið og lesa tölvupóst eru mun líklegra til þess að fjárfesta í snjallsíma eða spjaldtölvu frekar en stórri borðtölvu. Þetta á líka við á Íslandi, þetta er ekki lengur staðreynd sem á bara við útlönd.  Æ fleiri fyrirtæki eru að koma sér upp vef sem hægt er að skoða í öllum skjástærðum sem og sérstökum farsímavefjum og hinum svokölluðu “öppum”.. sem er auðvitað ekki íslenska, ég hef heyrt talað um smáforrit og líka bara forrit fyrir app, sem stendur fyrir application, en þetta er auðvitað allt gert til þess að koma á móts við viðskiptavininn sem, eins og segir, er í auknum mæli farinn að nota allt önnur tæki en hér fyrir nokkrum árum við netskoðun.

Gott dæmi sem nefna má í sambandi við mikilvægi þess að vefsíðan sé lesanleg í t.d snjallsímum eru vefsíður ferðaþjónustufyrirtækja. Ferðamenn eru með snjallsíma í auknum mæli og geta farið, að undanskildum örfáum blindpunktum hér á landi, á netið alltaf, allan sólarhringinn, nær hvar sem er. Það er augljós ávinningur að ferðamaðurinn geti skoðað gistingar- og afþreyingarmöguleika meðan hann ferðast.

Annað gott dæmi eru vefsíður fréttamiðla. Hefurðu ekki tekið eftir fólki á gangi, í strætó, að bíða einhversstaðar að það eru allir í símanum öllum stundum? Það er þar sem þú nærð fleiri lesendum inn, þar með auknum auglýsingatekjum og mun víðtækari dreifingu.

Ég þarf ábyggilega ekki að taka það fram að fáir þú vefsíðu, nýja eða endurhannnaða, hjá mér verður hún líka vel læsileg í öllum þessum skjám.

UPPFÆRA VEFSÍÐUNA ÞÍNA?

Vefsíða er ekki bara vefsíða. Illa hönnuð og illa uppsett vefsíða er líklegri til að skemma fyrir heldur en ef það væri engin vefsíða. Veraldarvefurinn breytist mjög hratt og ekki allir sem átta sig á því hversu mikið markaðstól hann er í raun og veru.

Í dag er símaskráin á undanhaldi og fólk fer beina leið á veraldarvefinn og leitar upplýsinga þar. Hvort það er eftir almennum fróðleik eða eftir því hvernig má komast í samband við þig þá fer fólk á netið (í tölvunni sem er í dag sítengd internetinu). Tilhneigingin er að ef þitt fyrirtæki kemur ekki upp á leitarvélinni (t.d Google) eigi síðar en strax þá fer fólk rakleiðis annað, t.d til keppinauta þinna. Eða ef notandinn finnur vefinn þinn og efni vefsins er ekki vel upp sett og viðmótið ekki notendavænt þá fer notandinn rakleiðis annað.

Mjög áberandi breytingar sem eru að eiga sér stað núna eru í kringum allan tækjabúnaðinn sem við höfum til þess að skoða netið í gegnum. Það eru ekki lengur borðtölvur í einni stærð heldur líka skjáir í yfirstærð, fartölvur í öllum stærðum, snjallsímar og spjaldtölvur.  Útaf þessu verða vefhönnuðir núna að hanna í samræmi við þetta og ganga úr skugga um að hægt sé að skoða vefi viðskiptavina sinna í öllum þessum tækjum.

Þetta er næg ástæða til þess að ákveða að endurhanna (eða endurkóða) vefinn sem þú átt fyrir og klárlega óska eftir þessu ef þú ert að fá þér nýjan vef. Ferðaþjónustuaðilar gætu t.d haft mikið gagn af því að uppfæra vefinn sinn þannig að hægt sé að skoða hann í snjallsímum og spjaldtölvum á meðan ferðalaginu stendur.

Gamlar vefsíður eru gjarnan illa finnanlegar á leitarvélum, einkum vegna þess að annaðhvort hefur ekki verið gerð leitarvélabestun eða þær nota gamlar aðferðir sem leitarvélar nota ekki lengur. Það er önnur ástæða til þess að endurhanna síðuna.

Við endurhönnun er ekki endilega verið að tala um að brjóta útlitið alveg upp og koma með eitthvað allt annað, mikilvægt er að auðkenni starfsseminnar haldi sér svo viðskiptavinurinn kannist ennþá við sig. Það getur hinsvegar verið tímabært að brjóta það alveg upp en það er líka hægt að fríska uppá það með einföldum aðgerðum. Endurhönnun getur líka verið um að kóða síðuna í samræmi við nútímann, endurvinna texta og myndir síðunnar og bæta leitarvélabestun,  bæta við einhverri virkni eða jafnvel bara að færa sig um set varðandi vefumsjónarkerfi. Margar gamlar síður eru ekki í vefumsjónarkerfi, eða í gömlu kerfi sem ekki hafa verið uppfærð í samræmi við staðla internetsins í dag. Það er nauðsynlegt fyrir eiganda vefsíðu sem ætlar að sjá um uppfærslu sjálfur að notast við heppilegt vefumsjónarkerfi …og ódýrt!

 

MERKISDAGUR

\\kristinvefhonnudur MERKISDAGURÍ dag setti ég nýjan vef minn í loftið. Velkomin á hann.